Móttekin: 13. júní 2008 - Vefútgáfa: 10. október 2008
Í september 1608 voru fyrstu sjónpípurnar kynntar til sögunnar í borginni Middelburg í Zeeland í Hollandi. Fréttir af hinni nýju uppfinningu fóru sem eldur í sinu um alla Evrópu og fyrr en varði hafði sjónaukinn valdið byltingarkenndum breytingum í stjörnufræði og heimsfræði. Í þessari grein er meðal annars sagt frá fyrstu sjónpípunum, linsusjónaukum þeirra Galíleós og Keplers og spegilsjónaukum Gregorys, Cassegrains og Newtons. Ennfremur er fjallað um ýmsa aðra þætti úr þróunarsögu sjónaukans á sautjándu og átjándu öld.
sækja grein (pdf) [raust.is/2008/1/01/]